Heimsreisa Baldurs K.

Ég held að alla dreymi um það e-n tímann að fara í heimsreisu, en fæstir láta nú verða að því. Baldur Kristjáns er einn af þeim fáum sem ákvað að kýla á hlutina. Hann er búinn að vera á flakkinu síðan í desember 2009 og hefur frá byrjun haldið úti ótrúlega skemmtilegu bloggi. Núna er ferðin að styttast í annan endann (held að hann ætli að slútta þessu í ágúst) þannig að ég mæli með því að þú rennir yfir myndirnar og myndböndin sem hann hefur sett þarna inn, það klárlega veitir manni innblástur. Það er mér allavega mikill heiður að hafa sett mark mitt á þessa ferð hans og birtast í myndbandinu hans um New York (á 2:32 mín).

Takk fyrir mig Baldur!

This entry was posted in Netið. Bookmark the permalink.

Ein athugasemd á Heimsreisa Baldurs K.

  1. Guðrún H skrifar:

    skemmtilega samsett video hjá honum :) Veitir manni alveg pottþétt innblástur :)