Stóra ryksugumálið

Þetta gæti verið ellimerki en ég verð að viðurkenna að ég er mega spenntur yfir ryksugu! Huh??

Við höfum aldrei átt ryksugu hér á Columbia Terrace og því höfum við notast við gamaldags sóp til að halda íbúðinni hreinni. Þegar maður á kött, og með gluggana opna 24/7, þá getið þið ímyndað ykkur hversu mikið verk það er, svo ekki sé talað um ópraktískt og ónákvæmt. Ég hef verið að skoða ryksugur í töluverðan tíma og það sem hefur gert þessa leit erfiða eru þessar ömurlegu amerísku ryksugur, sem eru alveg út í hött hannaðar en markaðurinn hérna virðist vera 80% svona ryksugur. Ég hef aftur á móti verið að leita mér að canister ryksugum, og ef maður ætlar að kaupa sér eitthvað sem endist lengur en fram á mánudag þá þarf maður að reiða fram yfir 30 þús krónur fyrir slíkt apparat.

Ég var við það að kaupa “einnota” ryksugu á 10 þús kall þegar ég rakst á síðu frá Electrolux sem selur ryksugur sem hefur verið skilað af ýmsum ástæðum. Þær voru yfirfarnar af Electrolux og voru nú í endursölu. Viti menn, þar fann ég 30 þús krónu ryksugu á 15 þús kall, og þar sem Electrolux er topp merki var ég fljótur að reiða fram kortið. Eini gallinn er sá að maður fær næstu ryksugu sem þeir eru með á lager, ég vona bara að ég fái ekki þessa grænu, en ég mun taka vel á móti henni, sama af hvaða uppruna hún er.

Skrímslið er væntanlegt í næstu viku og get ég ekki beðið eftir því að ryksuga húsið, eins furðulega og það hljómar!

This entry was posted in Almennt. Bookmark the permalink.

3 athugasemdir á Stóra ryksugumálið

  1. Sigga sys skrifar:

    vei vei vei – nú er bara að sjá hvernig Mr. Finn bregst við rygsugunni :0)

  2. Jónas skrifar:

    Topp ryksuga þarna á ferðinni frá Electrolux. Hef átt svona sugu í nokkur ár og það er góður sogkraftur í kvikindinu…

  3. Hafdís Ósk skrifar:

    Það munar öllu að eiga góða ryksugu og í raun er oft skynsamlegt að kaupa eyða aðeins meiri pening í þær svo að þær endist lengur en í 1 ár og ryksugi eitthvað annað en ímyndað kusk!