Sultans Of Swing (Live)

Gummi minntist á Youtube-myndbönd sem maður setur í favorites, og horfir síðan reglulega á við mikla skemmtun. Myndbandið sem Gummi póstaði er einmitt eitt af mínum favorites, en ég ætla að pósta öðru myndbandi sem ég kíki oftar á, og verð alltaf jafn dolfallinn.

Það er myndband af Mark Knopfler taka Fenderinn í vinnuna í laginu Sultans Of Swing. Ég er enginn mega aðdáandi Dire Straits, en lagið er gott og þessi útgáfa er gjörsamlega trufluð. Ég póstaði þessu í vor á Facebook, en ég held að það sé fínt að halda þessu til haga hér.

Það má segja að lagið byrji varla fyrr en á 5 mínútu.

This entry was posted in Tónlist. Bookmark the permalink.

Ein athugasemd á Sultans Of Swing (Live)

  1. Pjétur Geir skrifar:

    Ég man eftir dreng á aldur við mig sem ég gruna um að hafa stundað sjálfsfróun undir gítartónum Knofler hérna í gamla daga, slík var aðdáunin, Ég sjálfur var meira hrifinn af Clapton.