HM 2010

Mér hefur tekist ágætlega til að þessu sinni að fylgjast með HM, þrátt fyrir að tímasetningin á leikjunum henti nú ekki alltaf vinnandi fólki hérna í Bandaríkjunum. Leikirnir hafa verið að fara fram frá kl 7:00 til kl sirka 16:30, og eftir að riðlakeppni lauk hefur verið flautað til leiks kl 10 og 14:30. Ég hef ekki unnið neitt voðalega mikið síðustu vikuna eða svo vegna þess að kallinn sem ég vinn fyrir skrapp út úr bænum, ég hef því verið vel með á nótunum í 16 og 8 liða úrslitunum. Ég veit eitt og annað um fótbolta, en ég er klárlega enginn sérfræðingur og hef aldrei litið á mig sem slíkan. Það hefur hinsvegar vakið athygli mína hversu létt það hefur verið að spá fyrir um úrslitin frá því 16 liða byrjuðu. Ég veit það ekki, kannski er það bara mín skoðun, en eins og mótið hefur spilast þá finnst mér einhvern veginn liggja í augum uppi hvernig leikirnir fara, sem fær mig til að hugsa hvernig veðbankarnir eru að fara út úr þessu móti?

Ég og Katie ákváðum að setja upp smá veðmál okkar á milli fyrir 16 liða úrslitin, og síðan aftur í 8 liða. Ég náði 7 leikjum réttum af 8, það eina sem ég klikkaði á var að ég hélt að Japan myndi hafa Paraguay. Aðeins einn annar leikur fannst mér vera virkilega á mörkunum, sem var Ghana vs USA. Það er svo sem hægt að færa rök fyrir því að Þýskaland vs England hafi fyrirfram verið tæpur (BARA út af sögunni milli þessara landa), og sama má segja um Spánn vs Portúgal. Ég veit það ekki, það var aldrei vafi í mínum huga og ég er nokkuð viss um að þeir sem fylgjast með þessu nokkuð hlutlaust geti verið sammála mér um það. Katie veit akkúrat 0% um fótbolta, og hún hefur ekki séð 1 mínútu af HM, samt náði hún að spá 6 leikjum af 8 rétt, og hún hafði ekki hugmynd um hvað ég kaus.

Í 8 liða úrslitum spáði ég rétt fyrir um alla 4 leikina, og Katie klikkaði bara á Brasilíu vs Holland, sem var eini vafasami leikurinn. Þrátt fyrir að Brassar og Argentínumenn hafi leikið nokkuð vel fram að þessu þá hvorugt liðið mætt neinni alvöru mótspyrnu á þessu móti, og það undir mikilli pressu. Mér fannst svipað vera upp á teningnum núna og á síðasta HM, leikur þeirra stóð á brauðfótum og um leið og þeir mættu alvöru liðum á mikilvægum tímapunktum þá hrundi allt draslið, þó svo Hollendingar hafa nú síður en svo valtað yfir Brassana. Holland hefur samt verið að spila ágætan bolta og þið virðist vera smá vindur í seglunum, sem hefur ekki alltaf verið til staðar hjá þeim, hafa oftar en ekki verið óheppnasta þjóðin á stórmótum undanfarin ár. Eina sem kom mér á óvart var hversu mikið Ghana stóð í Uruguay, það var samt gaman að sjá, hefði ekkert á móti því að hafa rangt fyrir um þann leik.

Núna ætla ég að jinxa allt heila draslið og segja hið augljóslega, að Þjóðverja og Hollendingar endi í úrslit, þar sem Þjóðverjar vinna. Ég bara trúi því ekki að Þjóðverjar geti farið á svona skrið og klúðrað því. Eins og ég minntist á þá þekkja allir sögu Hollendinga á stórmótum, hún er ekkert að fara að breytast núna, það verður bullandi mótvindur hjá þeim á móti Þjóðverjum. Spánn hefur verið að fara í gegnum sína leiki allt of tæpt til að komast í gegnum Þýskaland, þeir eru nú þegar komnir lengra, en þrátt fyrir að brenna upp á móti Þýskalandi verður leikurinn um 3 sætið verður nægilega mikil hvatning fyrir liðið að þeir klári það mál.

There, I said it.

This entry was posted in Íþróttir. Bookmark the permalink.

6 athugasemdir á HM 2010

  1. Robbi skrifar:

    Það er vonandi að þú verðir sannspár. Og ég er nokkuð sammála þér, 16 og 8 liða úrslitin hafa verið nokkuð augljós þó svo að leikirnir hefðu getað endað öðruvísi. Það munaði t.d. ekki miklu að Ghana hefðu komist áfram og ef þessi Milo hjá Brössunum hefði ekki ákveðið að spila lélegasta leik feril síns, þá hefðu Brassarnir komist áfram.

  2. Fjóla sys skrifar:

    Elska Þýskaland í þessari keppni og ég vona að jinxið þitt virki ekki. Spánn þarf svo að girða sig í brók ef þeir ætla sér að vinna þá í næsta leik.

  3. Hafdís Ósk skrifar:

    Æ, nei Þýskaland er svo leiðinlegt að það hálfa væri nóg!
    Annars fannst mér riðlakeppnin ekki vera eins augljós og var frekar léleg að spá fyrir um gengi liða þar.
    Spánn er mitt lið – finnst þeir mun skemmtilegri þó svo að þeir hafi e.t.v ekki náð að sýna alveg sitt rétta andlit!

    Þýskaland er bara land og lið sem ég gæti aldrei haldið með þó svo að ég fengi borgað fyrir það – jú, kannski ef við værum að tala um rausnarlegar upphæðir!

  4. Ívar Örn skrifar:

    You jinxed it!

  5. Sigurjón skrifar:

    Glæsilegt, ég er bara sáttur við það að hafa lagt mitt af mörkum.

    Núna ætla ég að jinxa Spán (þó ég voni frekar að þeir vinni en Holland).

  6. Anna, mamma skrifar:

    Nú er potturinn í vinnuni undir, ég sagði Spánn eins og þú sagðir mér eða þannig…verst er að það sögðu líka 14 aðrir:-(