Snekkjast á Hudson

Í tilefni þess að einn af prinsum bloggsins, Gummi Jóh, á 10 ára blogg-afmæli í dag (verður reyndar “í gær” þegar ég pósta þessu), þá ætla ég að veita honum hér með blogg-gjöf.

Ég fékk símatal nokkrum dögum fyrir útskrift frá Stian félaga mínum, Norðmanni sem útskrifaðist með mér frá SVA. Hann tjáði mér að vinur hans ætti bát og sá kauði hafi boðið Stian, sem útskriftargjöf, að taka smá siglingu á bátnum, ooooog hann mætti bjóða sirka 10 vinum sínum með sér. Stian var ekki lengi að bjalla í 10 stráka og planið var að fara út á fimmtudeginum fyrir útskrift.

Við mættum stundvíslega á Chelsea Piers klukkan 16, vitandi akkúrat ekkert hvað beið okkar. Stian hafði aldrei séð þennan bát og vinur hans var ekki á staðnum, það eina sem við vissum var nafnið á bátnum. Ætli það hafi ekki verið tæplega 50 bátar í höfninni, en eiginlega enginn nægilega stór til að hýsa 10 stráka, þannig að við stóðum þarna eins og hálfvitar og skimuðum eftir líklegum dalli til að taka okkur út. Eftir að hafa skeggrætt málin í sirka 20 mínútur um hvað skyldi gera, kemur þá ekki þessi líka magnaða snekkja inn í höfnina. Pedro, vinur okkar frá Brasilíu, sagði strax, á sinni sérstöku ensku; “There is our boat”, sem við hlógum allir að.

Nafnið passaði, þetta var helvítis báturinn. Við litum allir á hvorn annan og vissum ekki alveg hvernig við ættum að haga okkur, hvort við ættum að faðmast eða hreinlega hoppa í sjóinn.

Fyrst um sinn breyttumst við allir í smábörn þegar við sáum í hvað stefndi, menn byrjuðu á því að rífa upp myndavélarnar og mynda hvorn annan í öllum krókum og kimum bátsins.

F.V. Stian, Tristan, Patrick og Devin, frekar sáttir með stöðuna.

Todd, Pedro, Stian, Danny og Tristan, virða fyrir sér Manhattan frá Hudson.

Síðan var siglt í rólegheitum upp eftir Hudson, á þessari (rúmlega) milljón dollara snekkju. Um borð voru tveir gaurar, skipstjóri og síðan maður sem sá um að okkur vantaði ekki neitt. Þeir sögðu að það væru þrír eigendur að þessum bát og voru þeir nýbúnir að sigla bátnum aftur til NY eftir að hafa verið á Bahamas yfir veturinn. Stian hafði ekki hugmynd um að vinur hans væri svona vel efnaður, en hann væri víst einhver fasteignamógúll í NY.

Snekkjan var 100%  solid, svefnpláss fyrir 10 manns, tvö “alvöru” herbergi, bæði með sér baðherbergi, flatskjá og ég veit ekki hvað og hvað. Ef ég hefði fengið tækifæri á staðnum til að fara með þessum bát til Bahamas þennan dag, þá hefði ég gert það.

Við vorum á rúntinum í sirka 3 tíma, og skemmtum okkur gríðarlega vel, svo vel að þessi mynd, af strákunum á bryggjunni eftir að hafa komið í land, er það síðasta sem ég man eftir frá þessum degi. Hvað get ég sagt, það er ekki á hverjum degi sem maður fær að taka rúnt á tæplega 200 milljón króna snekkju.

This entry was posted in New York. Bookmark the permalink.

3 athugasemdir á Snekkjast á Hudson

  1. TomasHa skrifar:

    Það er alla vegna ljóst að þú átt ekkert erindi í pólitíkina hérna heima eftir þessa siglingu :)

  2. Sigurjón skrifar:

    Ég er einmitt að velta því fyrir mér hvort það sé einhver staða, sem ég gegni heima á Íslandi, sem ég þarf nú að segja mig úr.

  3. Gummi Jóh skrifar:

    Ég þakka fyrir mig, djúpt snortinn.

    Breiðholt að eilífu amen.