Það eru til einhverjar örfáar myndir af mér á útskriftardaginn. Vélin hjá Siggu systur klikkaði þennan dag þannig að hún á ekkert, en ég sat fyrir á sirka þremur myndum með öðrum, kannski að ég nálgist þær myndir við tækifæri. Núna er athöfnin komin á netið (þar á meðal ræðan hjá Katie), þannig að ég gat stolið þaðan þremur skjámyndum af því þegar ég tók við skírteininu mínu, klæddur í glæsilega rauðu hempu sem skólinn lætur okkur vera í.

Hérna geng ég inn á sviðið og tek í höndina á forseta skólans, David Rhodes. Á meðan faðmar Katie, Stephen Frailey, deildarforseta ljósmyndadeildarinnar.

Síðan var komið að mér að faðma Stephen, á meðan gengur Katie út af sviðinu.

Svo gekk ég af sviðinu, á meðan Jim félagi minn faðmaði Stephen Frailey innilega.

Innilega til hamingju með úrskriftina. Þú ert flottur í rauðu!!
Til hamingju
Icelandair var að breyta fluginu mínu, átti að fljúga frá JFK to KEF 8. júní um 14 en þeir færðu mig í helv kvöldflugið sama dag. Þannig að ég er með slatta af klst til að drepa í big apple. Þannig að ef þið Katie eruð ekkert að gera og vilduð hitta mig þá er ég til. Ef ekki, þá kíki ég bara á NY. Alla vega síminn hjá mér er 217-819-9025
Kærar þakkir Fjóla mín!
Bjössi, henti á þig mail!