Eftir rúmlega ár í vinnslu þá er lokaverkefni mitt frá School of Visual Arts loksins komið í það horf að hægt sé að sýna það almenningi. Þrátt fyrir að þetta sé ákveðinn tímapunktur þar sem ég tel seríunna vera í nokkuð góðu standi, þá er þetta verkefni í sjálfu sér ennþá í vinnslu. Héðan í frá mun ég ekki gera sérstakar ferðir heim til Íslands í þeim tilgangi að mynda, en ég hef ennþá hugmyndir fyrir þessa seríu, og á meðan ég hef ennþá eitthvað til málanna að leggja þá mun ég klárlega halda áfram að bæta við seríunna þegar tækifæri gefst.
Endilega kíkið á afraksturinn, þetta er búið að kosta mikla vinnu, bæði líkamlega og andlega, sem og fjármuni að sjálfsögðu. Ég er nokkuð stoltur af því hvernig til hefur tekist, en því skal aldrei gleyma að án ykkar (þið vitið hver þið eruð!) væri þetta ekki að koma fram í dagsljósið núna. Kærar þakkir fyrir allt saman!


Ekkert að þakka. Flott hvernig til hefur tekist. Bíð spenntur eftir ofnæmissögunni.