Vel gert Ísland!

Já, strákarnir okkar eru heldur betur að standa sig vel þessa dagana, allavega mun betur en starfsmenn Umhverfisstofnunar, það er nokkuð ljóst. Ég næ ekki alveg upp í nefið á mér að ísbjörninn sem kom á land í gær hafi verið skotinn, mér þykir það mjög miður og finnst það bera vott af aulaskap af okkar hálfu.

Það er ekki birninum að kenna að við séum að bræða undan þeim ísinn og þeir þurfi að leggja til sunds svo dögum skipti. Þegar þeir koma svo hingað, þreyttir, ringlaðir og svangir, sjáum við engan annan kost í stöðunni að en að skjóta þá til bana, án þess að skoða neina aðra kosti. Við sýndum stórkostlegan aulaskap í bæði skiptin sem birnir gengu hér á land árið 2008, í fyrra skiptið var björninn dauður áður en stafsmenn Umhverfisstofnunar svo mikið sem fengu símtal um málið, þökk sé miklum karlmönnum á norðurlandi sem fannst þeir þurfa að sýna sig og sanna með fínu byssunar sem þeir áttu upp í skáp. Umhverfisstofnunar fékk senda mynd af dauða dýrinu og skyttunum fyrir aftan, mynd sem var tekin á fínu Sony Cyber-shot vélina sem ein skyttan keypti fyrir sunnan jólin á undan. Í seinna skiptið var heiðarleg tilraun gerð að fara réttum höndum um björninn, aftur á móti voru skytturnar þreyttar þann daginn, nenntu ekki að koma sér fótgangandi í skotfær og fóru því keyrandi í átt að birninum, sem auðvitað styggði skepnuna og sendi hann hlaupandi út í opinn dauðann. En það var auðvitað birninum sjálfum að kenna, hann má ekki hlaupa aftur út í sjó eftir að hafa stigið á landi, þetta stendur allt í kynningarbæklingnum sem þeir fá við komuna til landsins. Hjá okkur aftur á móti er allt mjög samræmt og fínt, mjög fagmannlegt og svo framvegis.

Eftir þessi tvö tilfelli var settur saman hópur sem bjó til viðbragðsáætlun ef ske kynni að svona mál myndi koma aftur upp. Ég vona að þessi hópur hafi ekki fengið mikið greitt fyrir þessa vinnu því niðurstaðan var sú að hringja skyldi í þann einstakling sem býr næst birninum, biðja hann um að skjóta dýrið og húrra því suður með næstu rútu. Það kostar of mikinn pening að bjarga þessum björnum, við vitum jú öll hversu vel efnuð þjóð við erum, og þar sem ísbirnir eru ekki í bráðri útrýmingarhættu er léttast (og ódýrast) að skjóta þá. Þriðja ástæðan er reyndar líka gefin, og það er að dýrið er víst rosa hættulegt. Ég er auðvitað svo vitlaus, ég hélt að það væri líka hægt að skjóta deyfingu í hættuleg dýr, en það er augljóst á þessari vel unnu skýrslu að aðeins byssukúlur bíta á svoleiðis dýr.

Ísbjörn er ekki hreindýr, Ísbjörn er ekki rjúpa, Ísbjörn er ekki refur. Ísbjörn er eitt allra merkilegasta dýr jarðar og okkur ber að vernda þá, ekki grípa strax til þess ráðs að drepa þá, nema við viljum líta út eins og molbúar.

This entry was posted in Almennt. Bookmark the permalink.

5 athugasemdir á Vel gert Ísland!

  1. Pjétur skrifar:

    Já þetta er skammarlegt!

  2. Bjössi Arngríms skrifar:

    Ég get nú ómögulega skilið að eitt dýr sé merkilegra en annað. T.d. eru hvalir ekkert meiri vitsmunaverur en hundar eða heyrnalausi kötturinn Finn. Að sama skapi finnast mér ísbirnir ekkert merkilegri en kindur.

    Hvað á hins vegar að gera við þetta dýr? Jú það er alveg hægt að sleppa því að drepa það en það verður að handsama það. Það mætti alveg skjóta í það deyfilyfi en hvað á svo að gera? Ekki er dýragarður á Íslandi? Ekki er hægt að láta hann ganga um á Íslandi. Kannski er hægt að setja hann í dýragarð erlendis en er það gott líf fyrir svona “merkilegt” dýr. Auðvitað er hægt að fara með hann aftur út á heimskautaísinn þaðan sem hann kom (eða til Grænlands þó svo ég efist um að menn viti nákvæmlega hvaðan hann kom) en þar kemur hann til með að drepast úr hungri því að þar er ekkert að éta fyrir þessi grey (ekki endilega þeim að kenna) og þess vegna eru þeir að slæðast hingað til lands.

    Þú, sveitamaðurinn, ert farinn að hljóma eins og Reykjavíkurliðið sem er alltaf snöggt til að gagnrýna alla skapaða hluti sem gerast úti á landi. Mín vegna mætti skjóta björninn með deyfilyfi og sleppa honum svo lausum í Öskjuhlíðinni þar sem hann gæti lifað af kanínum og grænmetissölufólki sem þar hittast til að vera með ólöglegt samráð um verð á grænmeti. Samt er ég viss um að flestum Reykvíkingum þættu ísbirnirnir ekki alveg jafn sætir eða “merkilegir” ef þeir gengju á landi í Reykjavík og færu þar að valsa um garða fólks.

    Ég er svo sem ekkert fylgjandi því að drepa greyið en ég sé bara ekki hvað á að gera við hann eftir að við erum búin að handsmana hann lifandi. Ekki borgar Bjöggi undir björninn einkaflugvél í dag.

    Gott dæmi um svona er þegar umhverfishópur (að mig minnir í kaliforníu) eyddi miljónum í að endurhæfa 2 seli sem höfðu lent í olíuslysi og voru útataðir í olíu. Þegar endurhæfingunni var lokið og þeim sleppt á haf út vour þeir varla kominir 500 metra þegar hvalur kom og át þá – þeim endurhæfingarpeningum var sannarlega vel eytt. Ég myndi t.d. frekar vilja drepa björninn og eyða þeim peningum sem hefðu farið í að bjarga honum lifandi í að bjarga fólki á Haítí (því það er heldur ekki þeim að kenna hvernig fyrir þeim er komið).

  3. Sigurjón skrifar:

    “Að sama skapi finnast mér ísbirnir ekkert merkilegri en kindur.” …sveitamaður eða borgarbarn Bjössi, þá hljómar þú frekar eins og illa upplýstur amerískur háskólanemi þegar þú segir svona lagað.

    Já, ég er sveitamaður og myndi aldrei vilja hafa það öðruvísi, en það breytir því ekki að mér finnst það vitlaust af okkur að skjóta þá birni sem ganga á Ísland, algjörlega óháð því hvar þeir ganga á land. Þessi dýr eru eitt af afar fáum landdýrum sem lifa á norðurhveli jarðar, það er bara svo einfalt. Stofninn er í sjálfu sér ekki í bráðri hættu þannig lagað, hann er sirka 20-25 þús á öllu arctic svæðinu, en þegar maður bara hugsar um ísbirnir frá öllum mögulegum sjónarhornum, þá er nokkuð ljóst að þetta er ekkert venjulegt dýr sem hægt er að bera saman við kindur og ketti.

    Panikið sem skapast þegar ísbjörn gengur á land breytist ekkert hvort sem á að skjóta dýrið eða deyfa það. Þannig að ég skil ekki alveg rökin hjá þér að vilja sleppa því í Öskjuhlíðina og sjá hvernig Reykvíkingum gengur að höndla málið. Ef við værum tilbúin undir koma þeirra hingað, þá er tíminn sem tekur að redda manni í að skjóta dýrið alltaf sá sami, það er bara spurning um hvað er í byssunni hans. Þess vegna á það ekki vera neitt erfitt að bjarga þessum dýrum, þetta er bara spurning um kostnað og ekkert annað. Við eigum til búr handa þeim frá því 2008, síðan það er nokkuð augljóst að þau dýr sem meika það hingað koma syndandi frá Austur-Grænlandi. Þessi dýr ekki að stinga sér í sjóinn í þeim tilgangi að synda til Íslands og fá sér að éta. Þau nota ísinn til að leita að fæðu, þegar ísinn bráðnar svo undan þeim þurfa þau leggja til sunds til að bjarga lífi sínu, og þess vegna koma þau stundum til Íslands. Aðstæðurnar eru ekki þeim að kenna, þetta er okkur að kenna, ég og þú Bjössi erum að hita loftið og bræða undan þeim ísinn. Það er blákaldur veruleiki.

    Auðvitað er panik að rekast á ísbjörn, en það er panik sem fjöldinn allur af fólki út um allan heim er að díla við. Eins og þú veist eru birnir í þjóðgörðum víða í USA og það er eitthvað sem fólk þarf að hafa í huga og taka tillit til. Við eigum alveg að geta gert það sama, auðvitað er alltaf einhver sem mun spotta björninn fyrstur og sá einstaklingur verður auðvitað í hættu, en það of seint að hugsa um það því björninn er þegar kominn til landsins. Þegar tilkynning er hinsvegar komin um björninn sé á svæðinu þá ber fólki að hafa augun opin, nota hausinn og varast dýrið, ekki rífa í myndavélina, hoppa upp í bíl og leita hann upp. Það var heimska fólksins sem skapaði hætturnar í kringum þá birni sem komu hingað sumarið 2008, ekki birnirnir sjálfir.

    Svo talar þú um að eyða peningunum frekar í Haití, því er ég sammála, en ég segi að við ættum frekar að hætta að eyða peningunum í þjóðkirkjuna, bara svo eitt dæmi sé tekið, ég er nokkuð viss um að það sé örugglega mun ódýrara að bjarga einum ísbirnir heldur en að uppfæra orgel í einni kirkju.

  4. Auður Aðalbjarnar skrifar:

    Ísbirnir eiga sín náttúrulegu heimkynni á lagnaðarís og á heimskautasvæðinu, ekki á Íslandi. Hér á Íslandi er björninn gestur en ekki auðfúsugestur. Hér mundi hann eiga mjög erfitt með að finna næringu, enda vanur að veiða seli við vakir á lagnaðarísnum. Eins og hver maður veit er hvergi lagnaðarís hér við land, og þar með erfitt fyrir björninn að veiða sér til matar.

    Bangsi sem sagt getur tæplega lifað á gæðum landsins okkar auk þess sem hann gæti riðlað vistkerfi hér þar sem hann er ekki hluti af því. Hvað á þá að gera? Skjóta hann og drepa eða að flytja hann lifandi til heimkynna sinna?

    Þá er spurt, hvers vegna flæktist bangsi svona langt frá sínum heimkynnum. Var hann kannski kominn á ystu nöf þar sem veiðilendur hans fara þverrandi? Var það það sem hrakti hann í burtu og er honum þá einhver greiði gerður með því að koma honum aftur á uppurnar veiðilendur, þar sem hans örlög verða bara sultur og dauði…í raun mun kvalafyllri dauði en riffilskotið sem hann að lokum fékk.

    Vandinn hefði ekki verið leystur með því að bjarga þessu dýri, það hefi í raun verið bjarnargreiði. Vandinn snýst að sjálfsögðu um hnattræna hlýnun en ekki þetta dýr. Það væri hins vegar óskandi að lausnin á þeim vanda væri eins einföld og að flytja eitt dýr úr sjálfheldu.

  5. Bjössi Arngríms skrifar:

    Ok ísbirnir eru merkilegri en kindur (ekki vil ég vera illa upplýstur amerískur háskólanemi).

    Ég veit samt ekki hvað á að gera við greyið þegar búið er að skjóta hann með deyfilyfi – ég held t.d. að það þýði ekki að flytja hann til Grænlands því þar er hann held ég varla með nægilegt æti (reyndar var þessi tiltekna birna vel á sig komin). Mér skilst að það kosti 5-8 milljónir að bjarga einum birni frá Íslandi þannig að það er kannski ekki óyfirstíganlegur kostnaður en ég bara veit ekkert hvað á að gera við hann. Hann getur ekki verið hér, hann getur illa lifað af hér og ber auk þess með sér sníkjudýr sem eru hættuleg faununni sem þegar er hér. Ég er ekkert fylgjandi að drepa þá en sé ekki annan góðan kost í stöðunni.

    Hnattræn hlýnun er vandamálið og við Sigurjón hitum hnöttinn upp og sköpum vandamál fyrir birnina. Samt skapar Óli Guðmunds miklu meira vandamál því hann rekur svo mikið við.