Sigurjón sigraði DMV

Fyrr í vikunni fékk ég afhent bandarískt ökuskírteini (New Jersey) og finnst mér magnað hvað lítill hlutur eins og ökuréttindi getur veitt manni mikla hamingju, kannski er það vegna þess að díla við DMV (Department of Motor Vehicles) er klárlega, hands down, skelfilegasta stofnun sem hægt er að finna í USA, tja, kannski á eftir Time Warner Cable.

Ég fór að hugsa um það í maí, þegar ég flutti til New Jersey, að fara að skoða þann möguleika að sækja um ökuskírteini. Hérna í NJ er ekki ALLT í göngufæri og almenningssamgöngur eru ekki alveg eins liprar hér eins og í New York. Katie á bíl þannig að ég fór fljótlega að reka mig á veggi að vera ekki með ökuskírteni. Ég var ekki alveg viss í hvaða vandræðum ég væri ef ég yrði stoppaður með íslenska skírteinið en eftir að hafa séð Cops þátt þar sem kona var handjárnuð fyrir að vera ekki með ökuréttindi fór ég að hafa aðeins meiri áhyggjur af ástandinu.

Fyrsta ferðin í DMV var í júní, þar var mér tjáð að ég gæti ekki fengið ökuskírteini nema að vera með SSN, sem ég áttaði mig á fljótlega að væri kjaftæði frá A til Ö. Ég fór til SSN skrifstofuna í NJ og fékk þar fullnægjandi pappíra sem leystu SSN vandamálið. Í annari ferð var ég sendur til baka vegna þess að pappírar sem áttu að sanna það á ég væri íbúi í NJ voru ekki fullnægjandi að þeirra mati vegna þess að ég hafði prentað bankayfirlitið mitt á netinu. Ég þurfti því að hafa samband við bankann og biðja þá um að senda mér official yfirlit, sem var mega vesen því í tölvunni hjá þeim vildi ég ekki fá yfirlit. Svona típískt the computer says no atriði. Í þriðja skiptið komst ég í gengum pappírstékkið og fékk þá að taka bóklega prófið. Þegar ég var búinn að skora 98% á prófinu (þurfti 80%) var með tjáð að ég þyrfti að láta þýða ökuskírteinið mitt, annað hvort hjá sendiráðinu eða hjá þýðanda sem væri samþykkur af DMV. Sendiráðið kom af fjöllum, hafði aldrei fengið slíka beiðni áður, þannig að ég þurfti að punga út $70 dollurum í þýðingu á skírteininu.

Fjórða ferðin í DMV var sú síðasta, þá voru allir pappírar samþykktir, þýðingin samþykkt og allt gúddí. Ég hafði lesið að á þessum tímapunkti myndi fá 3 mánaða æfingaaksturleyfi, eftir þann tíma væri svo verklegt ökupróf og þegar það hefur verið staðið fæ ég ökuskírteini. Hér koma hinsvegar góðu fréttirnar, einhverja hluta vegna var mér veitt skírteini á staðnum og þarf ég ekki að taka neitt verklegt. Skírteinið rennur út mun fyrr en venjulegt þykir út af dvalarleyfinu mínu þannig að ég þarf að fara aftur á þessu ári og sanna fyrir þeim að ég sé ennþá löglegur í landinu, ég vona bara að það taki ekki fjórar ferðir.

Anyway, ég get farið að keyra án þess að stressast upp yfir því að sjá löggubíl á hverju horni, nú eða hvað myndi gerast ef ég myndi lenda í óhappi. Annar ljós punktur er að ég loksins kominn með bandarískt skilríki, en það besta við þetta allt saman er að núna eru engar hömlur á manni þegar kemur að því að mynda, núna getur maður keyrt út um allt og fundið myndefni.

This entry was posted in Almennt. Bookmark the permalink.

2 athugasemdir á Sigurjón sigraði DMV

  1. Anna(mamma) skrifar:

    Farðu varlega í umferðinni, góði. Hún er nú ekki venjuleg,ÓMG.

  2. Bjössi Arngríms skrifar:

    He he

    þegar ég fékk mitt skírteini mætti ég með stóra bleika ísl skírteinið (ekki það litla nýja) og á því stóð að það væri alþjóðlegt. Þannig að ég tók bara bóklegt próf og labbaði svo út með bandaríska skírteinið. Ég lennti reyndar í sama mausi og þú með að sanna að ég byggi þar sem ég byggi (koma að lokum með rafmagnsreikning í mínu nafni með heimilsfanginu). Síðan þá hef ég endurnýjað mitt USA skírteini reglulega þegar ég fer til USA og þá gef ég bara upp eitthvert heimilsfang hjá vini mínum og hef aldrei verið beðinn um að sanna aftur hvar ég bý.

    Af hverju endurnýja ég. Jú því USA skírteinið gefur mér talsvert meiri réttindi en það bleika t.d. má ég keyra 20 tonna bíl og draga 10 tonn. Þannig að á Íslandi veifa ég bara þessu frá USA og hef aldrei lent í teljandi vandræðum með það (stundum aðeins stælar en þá segistu bara búa erlendis en vera í stuttu fríi hér heima)