Tónlistarárið 2009

Það er komið að því að gera upp tónlistina á árinu 2009, sem ætti ekki að taka langan tíma því 2009 var svolítið sérstakt hjá mér þegar kemur að tónlist. Ég hlustaði gríðarlega mikið á tónlist, ætli ég sé ekki með tónlist í eyrunum að meðaltali 8 tíma á dag, alla daga ársins. Undanfarin ár hef ég verið duglegur að tékka á nýjum plötum, gefa þeim nokkra snúninga og athuga hvort ég sé nokkuð að missa af einhverju bitastæðu.

Ég hef ekki gert mikið af því að þessu ári, þetta ár var 70% helgað Bob Dylan og sökkva mér djúpt í efnið hans, bæði að hlusta eins mikið efni og ég get sem og fræðast um hann, t.d.. lesa ævisöguna hans. 20% af tímanum var ég að kynna mér betur Drum n’ Bass tónlist, eitthvað sem ég mun halda áfram að gera, er sáttur við það sem ég hef rekist á þar. 10% effort var svo sett í að fylgjast með nýjum plötum og tékka á hljómsveitum sem hafa unnið sér inn traust yfir árin. Þannig að þó svo þetta hafi verið ár Bob Dylan, þá eru þetta plötur ársins hjá mér.

  1. High Contrast – Confidential
  2. The Whitest Boy Alive – Rules
  3. Yeah Yeah Yeahs – It’s Blitz!
  4. Handsome Furs – Face Control
  5. Dikta – Get It Together

Það er semsagt Drum n’ Bass plata í fyrsta sætinu hjá mér að þessu sinni, en það var erfitt að velja á milli High Contrast og The Whitest Boy Alive, fyrir mér voru þetta tvær lang bestu plötur ársins. High Contrast gaf út safnplötu með öllu sínum bestu lögum og remix-um, ásamt nokkrum nýjum. Frábært stöff, alveg frábært stöff sem ég gæt bæði hlustað á í rólegheitum heima, sem og á hlaupum. Ef þið hafið gaman að “raftónlist” þá getur þessi plata ekki klikkað. The Whitest Boy Alive gaf út sína aðra plötu, Rules, og fylgdu þar með hinni frábæru plötu “Dreams” mjög vel eftir, þeir eiga tvímælalaust lag ársins, en það er Island.

Þegar kíkt er á Last.fm, sem trakkar það sem ég hlusta á, þá er listinn fyrir árið 2009 aðeins öðruvísi.

  1. Bob Dylan
  2. Logistics
  3. Hospital Records
  4. High Contrast
  5. Wolf Parade
  6. Kings of Leon
  7. Elvis Presley
  8. Yeah Yeah Yeahs
  9. Leadbelly
  10. Paul van Dyk

Dylan efstur auðvitað, Logistics er drum n’ bass gaur sem gaf út frábæra plötu árið 2008 sem heitir “Reality Checkpoint“, Hospital Records er útgáfufyrirtæki sem gaf út góða safnplötu sem heitir “This Is Drum & Bass”, svo er það High Contrast með sína plötu, Wolf Parade og Kings of Leon fá alltaf mikla spilun á hverju ári, síðan datt ég í gamalt stöff með Elvis og Leadbelly. Leadbelly hlustunin er þó bara á síðustu 2 mánuðum eða svo.

Ef ég ætti að velja eina plötu sem ég myndi segja að væri uppáhalds platan mín á árinu þá væri það klárlega “Bob Dylan Live 1975 – The Rolling Thunder Revue“, besta live plata sem ég hef nokkurn tímann heyrt og klárlega ein af mínum uppáhalds plötum ever.

Tónleikar ársins voru síðan Kings of Leon í Madison Square Garden í janúar, þeirra fyrstu tónleikar í garðinum, klárlega 5 stjörnur af 5.

http://www.amazon.com/Rules-Whitest-Boy-Alive/dp/B001SXZ7UG/ref=sr_1_1?ie=UTF8&s=music&qid=1263355308&sr=1-1
This entry was posted in Tónlist. Bookmark the permalink.

5 athugasemdir á Tónlistarárið 2009

  1. matti skrifar:

    ertu búinn að tékka á nýju plötunni frá Tinariwen?

  2. Sigurjón skrifar:

    Nei, er það möst plata?

  3. matti skrifar:

    já ég myndi segja það

  4. Kristján Atli skrifar:

    Ég tékkaði á High Contrast-plötunni eftir að lesa þessa færslu. Búinn að hafa hana á rípít síðustu þrjá daga. Frábær plata, virkilega ferskt sánd fyrir drum’n'bass.

  5. Sigurjón skrifar:

    Gaman að heyra Kristján, ég vona að ég geti e-n tímann endurgoldið þér þann greiða, að láta mig á sínum tíma fara að hlusta á Tool, með því að kynna þér fyrir Hospital Records; London Elektricity, High Contrast, Logistics og fleirum….(http://www.hospitalrecords.com/artists/)

    BESTA fyrsta skrefið er hinsvegar að gerast áskrifandi að “The Hospital Records Podcast” (stjórnað af London Elektricity), frábært podcast með öllu því besta sem er að gerast í Drum n’ Bass í dag.