Bulland gróði

Var að setjast niður á Beth Israel sjúkrahúsinu á 7 ave og er að bíða eftir lækni (er líklega með létta lungnabólgu). Þar sem biðin hérna er yfirleitt 3 tímar plús þá datt mér í hug að skrifa lítið blogg á símann minn, það ætti að halda mér uppteknum í e-n tíma.

Í jólafríinu fór ég inn í risa antikbúð í NC, sem er ekki frá sögu færandi nema hvað að mér datt í hug að kíkja á það sem ég hef mest vit á, ljósmyndabækur. Ég leitaði og leitaði og fann ekki neitt í fyrstu en síðan rambaði ég á 5 ljósmyndabækur út í horni. 4 af þeim voru kennslubækur, 5 bókin þekkti ég um leið, þar var á ferðinni bókin “The Family of Man” eftir Edward Steichen en sú bók var gefin út samhliða sýningu sem hann setti upp í Museum of Modern Art í New York árið 1955.

Þarna kom öll ljósmyndasagan sem ég er búinn að læra að góðum notum. Ég vissi auðvitað hversu mikilvæg þessi sýning var og að finna orginal bókina frá 1955 hlýtur að vera einhvers virði. Ég keypti kvikindið á 15 dollara, fór á netið og reyndi að finna einhverjar upplýsingar hvað væri hægt að fá fyrir þessa bók. Það er hægt að kaupa nýja útgáfu af bókinni á Amazon á 150 dollara. Eftir mikla leit fann ég safnarasíðu sem listaði þessa bók á 250 til 300 dollara, hefði hún verið árituð þá værum við að tala um 650 til 700 dollara. Djöfullinn Steichen, af hverju ertu dauður!? Tja, líklega af því hann var fæddur 1879.

Allavega, ég er nokkuð ánægður með það að menntun mín hafi komið sér að góðu úti í hinum stóra heimi, núna þarf ég bara að finna 30.000 bækur í viðbót til að borga upp námslánin.

This entry was posted in Almennt. Bookmark the permalink.

9 athugasemdir á Bulland gróði

  1. GJ skrifar:

    Vel gert, er komið boð í hana ?

  2. Sigurjón skrifar:

    Ég held í hana í einhver ár í viðbót og sel hana svo á uppboði fyrir milljón dollara ;)

  3. Bjössi Arngríms skrifar:

    hmm

    ertu kannski með lungnabólgu af því að þú ert með ofnæmi fyrir hálf-blindum og heyrnalausum hvítum ketti???

  4. Sigurjón skrifar:

    Finn er með afskaplega góða sjón, það er ekki vandamálið… annars var það lungabólga sem var að anga mig heldur bonkítis, sem er búið að vera undirliggjandi síðan í maí, hef bara aldrei farið til læknis út af því en ákvað að láta verða að því núna þegar ég varð helvíti slæmur í kjölfar flensu sem ég fékk.

    Hvort það sé kettinum (köttunum) að kenna eða einhverju öðru þarf að koma í ljós, ég er allavega í “meðhöndlun” núna í fyrsta skiptið, ef þetta lagast ekki að þessu sinni þá þarf eitthvað að hugsa málin og reyna að finna orsökin, með ofnæmisprófum og öðru slíku.

  5. mamma skrifar:

    Farðu nú vel með þig, gæskurinn. Láttu þér ekki verða kalt….

  6. Bjössi Arngríms skrifar:

    Tek undir með mömmu þinni

    …en

    ef þú ert búinn að vera með skít í lungunum síðan í maí og hefur meira og minna búið með köttum frá því aðeins fyrr þá held ég að þú sert enn með ofnæmi fyrir köttum

    sorry

  7. Hafdís Ósk skrifar:

    Ég er dálítið hrædd um að Bjössi hafi rétt fyrir sér. Ofnæmi fyrir dýrum er yfirleitt ekki eitthvað sem deyr heldur magnast frekar upp ef eitthvað er. Ég var með lítið ofnæmi fyrir hestum sem lýsti sér helst í því að ég mátti ekki vera neitt sérstaklega að þvælast nærri þeim þegar ég var yngri. Eftir að hafa verið lokuð inni í reiðhöll með nokkrum slíkum í 2 tíma í kringum tvítugt lokaðist næstum á mér hálsinn og ég var slæm í lungunum í nokkra mánuði á eftir og efitr það þoli ég mjög illa að vera nálægt þeim.

    En ég vona að þú sér undantekningin sem afsanni regluna og sért ofæmisfrjáls – svona Finn-lega séð! Er hann annars skírður í höfuðið á Brandi úr Pétur og kötturinn Brandur sem heitir Finn á upprunalega tungumálinu? Það þætti mér nefnilega töff! Þar sem ég er jú svo töff!

  8. Sigurjón skrifar:

    Nei ég er algjörlega meðvitaður um þann möguleika að kötturinn gæti verið að valda þessum vandræðum, það er meira að segja vel líklegt, mér finnst það bara furðulegt að ég sé ekki með nein önnur einkenni ofnæmis en hósti þegar ég fer út að hlaupa. Núna þegar ég fékk einhvern flensuskít þá fóru lungun að valda mér vandræðum allan daginn (það gerðist ekki síðast þegar ég fékk flensu) þannig að ég stökk á tækifærið og hitti lækni í slíku ástandi.

    Læknirinn kallaði þetta “asthmatic bronchitis” en ýmislegt getur framkallað það, t.d. ofnæmi, slæmt loft, næringaskortur, langvarandi nefholssýkingar, og svo framvegis.

    Þó svo kötturinn liggur vissulega undir grun þá er loftið í íbúðinni minni líka verulega slæmt, það er það þurrasta sem ég hef nokkurn tímann upplifað, sem er klárlega eitthvað sem getur vel ýtt undir svona vandamál. Ég keypti ódýrt rakatæki um daginn og mér hefur liðið betur eftir það, en loftið er þrátt fyrir það ennþá of þurrt, gætu þurft að fjárfesta í einhverju afkastameira.

    Ég held áfram að kanna þetta mál, ef kötturinn er ástæðan þá verður fundin einhver lausn á því, því það kemur ekki til greina að ég sætti mig við að hafa lungun á mér í þessu ástandi.

  9. Sigurjón skrifar:

    Ó já, Finn var reyndar ekki skírður eftir neinum sérstökum, okkur bara líkaði vel við nafnið. Mér lýst hinsvegar vel á þína útskýringu Hafdís, við skulum bara segja að hann sé skírður eftir kettinum úr þessari sögu ;)

    (Ég vildi samt fyrst skíra hann Felix, eftir “Felix the Cat” = http://en.wikipedia.org/wiki/Felix_the_Cat)