Samsýning á Broadway

Well, ég sagði ykkur frá því fyrir mánuði síðan að ég væri með mynd á sýningu í gallerýi á Broadway og að ég komst ekki á opnunina vegna þess að ég var heima á Íslandi að mynda.

Nema hvað, ég fékk email stuttu eftir að ég kom aftur út að hópurinn sem ég var í (hópur A var í 2 vikur og hópur B átti að vera í 2 vikur) væri að fá svo góðar undirtektir að ákveðið var að framlengja sýninguna um tvær vikur. Ég var því ekkert að stressa mig á því að fara og sjá sýninguna um leið og ég kom aftur til New York, hafði nægan tíma til þess.

Í gær fékk ég svo email þar sem ég var vinsamlegast beðinn um að sækja myndina mína í gallerýið þar sem sýningin væri búin. Góður Sigurjón! Ég semsagt steingleymdi að fara og skoða sýninguna, sem ég var sjálfur í.

Ég frétti þó að myndin hafi notið sýn vel og hafi verið á “besta stað” á sýningunni, hvað sem það þýðir svo sem.

Hérna er svo myndin, komin upp heima.

This entry was posted in Almennt. Bookmark the permalink.

Ein athugasemd á Samsýning á Broadway

  1. Fjóla sys skrifar:

    you are too cool for school my friend