Er ekki kominn tími á að upphafsmaður punktabloggsins noti sitt margfræga layout, það er það langt síðan ég punktabloggaði að ég er hræddur um að fólk sé farið að gleyma upprunanum. Einar Örn er sá eini sem getur gert heiðarlegt tilkall til punktabloggsins en það mál hefur áður verið rætt á þessari síðu, við byrjuðum á þessu á svipuðum tíma en orðið “punktablogg” kom frá mér þannig að ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að ég sé uppruninn. Gúglið og þér munuð sannfærast að yður finnið ekki eldra (íslenskt) “punktablogg” en á minni síðu. Allt þetta geri ég í þeirri von að komast á Wikipedia einn daginn.
Það hefur gengið vel að vinna úr þeim myndum sem ég skaut heima í nóvember. Megi Jesúbarnið blessa ykkur öll sem hjálpuðu mér að komast heim til að sinna því verkefni. Það sem ég hef sýnt í tímum hefur fengið góðar undirtektir og er fólk almennt sammála um að myndirnar núna séu betri en þær sem ég tók til dæmis í mars. Ég er aftur á móti á því að ef ég safna öllu saman þá ætti ég að vera með nokkuð sterka seríu so far. Hvort ég komi heim aftur eftir áramót kemur í ljós.
Þetta verður annað skiptið á minni lífsleið sem ég mun ekki dvelja á Íslandi yfir jól og áramót. Síðast var það árið 2003 þegar ég dvaldi í Flórída yfir hátíðarnar. Það er ekki komið á hreint hvort við verðum í NJ eða NC yfir jólin en ætli það sé ekki nokkuð pottþétt að NC mun hýsa okkur yfir áramótin. Það er auðvitað leiðinlegt að geta ekki verið í mat hjá mömmu en svona er lífið. Ég veit að móðir mín er himinlifandi með þetta allt saman, ekki satt mamma?
Bubbi Morthens er hálfviti. Afsakið orðbragðið.
Ég er að týna íslensku orðunum mínum, það tók mig svona 10 mínútur að finna orðið “viðurkenna” nú rétt í þessu.
Ég fór á tónlist.is til að ná í slatta af ókeypis músík. Eftir að hafa farið yfir listann downloadaði ég tveimur lögum, Gus Gus og Ourlives, restin myndi ég ekki hlusta á allsgáður, kannski ég downloada restinni seinnia í kvöld þegar ég kem heim úr jólagleði Gotham Imaging (*hint hint* frítt bús).
Annars vil ég að þið öll sýnið hógværð og látleysi í lífsstíl og neyslu, líka þú Kalli, er viss um að þú gætir sparað aðeins á fötunum sem þú kýst að ganga í. Hvað ertu til dæmis að eyða (eða á ég að segja, “hvað erum við að eyða”) í vinnuföt fyrir þig á hverju ári? Eru ekki takmörk fyrir því hvað þú þarft margar fjólubláar skyrtur?

hlakka til að sjá seríuna!
og
thumbs up með bubba punktinn!
Vona svo sannarlega að þið eigið gleðileg jól, en mamma er EKKI himinnlifandi yfir því að þig (ykkur) skuli vanta við jólaborðið.
En það verður bara síðar, vonandi..