Samsýning á Broadway

Hérna er gott dæmi um hversu mikið ég hef misst dampinn í blogginu, ég er búinn að vita af þessu í tæpa 2 mánuði, án þess að segja neitt.

Í gær opnaði samsýning í Broadway Gallery sem heitir Recessive Traits: In the Absence of the Dominant Element, sem er ekki frásögu færandi nema hvað að á þessari sýningu er að finna mynd eftir mig. Þetta er í sjálfu sér merkilegur áfangi þar sem þetta er fyrsta samsýningin mín á erlendri grundu og ekki verra að það sé í gallerý á Manhattan.

Þetta kom nú til eins og allt kemur til í þessum geira, maður þekki mann og svo framvegis, og þannig var ég beðinn um að taka þátt. Ég þekki stelpuna sem stendur að þessari sýningu og þegar hún spurði hvort ég væri til í að taka þátt með eina mynd úr ISK seríunni (mynd sem hún valdi). Á þeim tímapunkti hafði ég nú satt best að segja ekki mikla trú á að þetta væri eitthvað merkileg sýning. Núna aftur á móti, eftir að hafa séð hverjir og hvaða myndir eru á sýningunni þá finnst mér ansi skemmtilegt að vera með í þessu.

Sýningunni var skipt upp í tvo hópa og stendur yfir í mánuð, fyrri hópurinn sýndi fyrstu tvær vikunnar í Nóvember og seinni hópurinn seinni tvær vikunnar. Ég er semsagt í hópi tvö og var opnunin fyrir þann hóp í gærkvöldi. Eins og allir mikilvægir listamenn þá gat ég ekki mætt vegna anna í starfi. Shit hvað það er töff. *Hóst*.

Einu sinni er allt fyrst og núna er bara að stefna á einkasýningu á Manhattan, ætli það verði þó ekki eitthvað í það að sú sýning líti dagsins ljós.

© Sigurjón Guðjónsson.

This entry was posted in Ljósmyndun, New York. Bookmark the permalink.

5 athugasemdir á Samsýning á Broadway

  1. Pjétur skrifar:

    Glæsilegt til hamingju með þetta :)

  2. Árni skrifar:

    Þetta er sem sagt ekki á Broadway í Ármúla?

  3. Jóhanna skrifar:

    Congratz! Þetta er klárlega bara byrjunin…

  4. Hafdís Ósk skrifar:

    Ég hélt fyrst að þetta væri hinn íslenski Broadway og þurfti því að byrja aftur að lesa þegar ég áttaði mig á því að svo var ekki!

    Innilega til hamingju með þetta snúðurinn minn! Ekkert smá flott hjá þér!

  5. Pingback: Samsýning á Broadway « Sigurjón Guðjónsson