Skólamál

Það er verulega spúkí að hugsa til þess að það séu búnar 5 vikur af þessari önn, það hræðir mig stórkostlega skal ég segja ykkur. Ég er ennþá í smá klemmu varðandi hvað skal mynda þetta árið. Loka árið er auðvitað mikilvægt þannig að mig langar til að halda áfram að mynda afleiðingar kreppurnar heima. Ég hef komist að því að það er mikilvægt project sem vekur töluverða athygli hjá fólki hérna. Flestir hafa auðvitað heyrt af kreppunni á Íslandi en fæstir gera sér grein fyrir hversu alvarleg hún er. Ég er ekki með mikið efni eins og er en það sem ég hef sýnt hefur fallið í góðan jarðveg og hef ég verið hvattur til þess (af mjög hæfileikaríku fólki) að halda áfram með þetta verkefni. Það eina sem það strandar á akkúrat núna eru fjármunir til að eyða í flug á milli landa en ég ætla að reyna að finna einhvern flöt á því sem allra fyrst, ræða við Icelandair, grafa upp einhverja ferðastyrki og svo framvegis. Ef þú ert með einhverjar hugmyndir hvernig væri best að haga sér í þeim málum, endilega hentu þá á mig línu, því maður þekkir mann og allt það, þið vitið hvernig þetta virkar allt saman.

Annars er þetta skólaár nokkuð gott. Það er ekki of mikið bóklegt áreiti á mér að þessu sinni, er aðeins í einum alvarlegum bóklegum tíma og þar er andrúmsloftið frekar afslappað, guði sé lof. Restin eru umræðutímar, og tæknilegt ljósmyndastöff, frekar “einfalt” þannig lagað en kallar auðvitað á slatta vinnu utan skóla. Ég er því á smá deadline að fara að skjóta eitthvað af viti, sem þýðir annað hvort að finna “frítt flug” sem allra fyrst eða finna sér eitthvað annað til að mynda.

This entry was posted in SVA. Bookmark the permalink.

2 athugasemdir á Skólamál

  1. Hafdís Ósk skrifar:

    Ertu búinn að skoða möguleikann á bankaráni? Spurning um að hafa samband við Albert sem er kominn í samband við Svía sem eru víst nokkuð góðir í að komast upp með slíkt! Svo er víst gott að kynna sér Mission Impossible myndirnar vel áður!

  2. Biggington skrifar:

    Hehe helviti god setning: “því maður þekkir mann og allt það, þið vitið hvernig þetta virkar allt saman.” Thetta er astaedan fyrir kreppunni.