Ég varð vitni að ansi merkilegum tónlistarviðburði í gær þegar hinn 89 ára gamli Dave Brubeck spilaði nokkur lög, þar á meðal hans frægasta lag, “Take Five”, í Apple búðinni í Soho. Á milli laga svaraði hann svo nokkrum spurning um ferilinn sinn, svör sem framköllu oftar en ekki hlátur áhorfenda.
Ég get sagt ykkur það að sá gamli framkallaði gæsahúð hjá mér nokkrum sinnum, og þegar hann spilaði svo “Take Five” með hljómsveit sinni, þá tókst honum að framkalla húð sem ég vissi ekki að ég ætti til. Þessu mun ég aldrei gleyma.

Ég og eiginmaðurinn (sem les held ég bloggið þitt oftar en ég) erum græn af öfund og með gæsahúð þér til samlætis. Hefði verið geðveikt að upplifa þetta.
Ég fór nú bara að pæla í því að byrja að hlusta á djass þegar ég sá þetta. Samt þoli ég ekki djass (svona yfirleitt).