30. August 2010
Er að reyna að setja smá fútt í þetta blogg aftur, finn fyrir smá “nennu” síðustu daga en það hefur ekki komið upp svo mánuðum skipti. Reynum fyrir okkur í punktabloggi, sjáum hvort ég man þetta ennþá.
Því miður er sumarið er að renna sitt skeið, maður sér það á veðrinu. Það er búið að vera heitt í sumar, 28 gráðu meðalhiti í júlí og 27 gráður í ágúst. Maður sér það samt á veðrinu núna að kvöldin eru ekki eins heit, og svo er mun minni raki í loftinu. Ég á samt mjög auðvelt með að vera í miklum hita og væri mér alveg sama þó svo það væri 30 stiga hiti ALLA daga ársins, ég nenni ekki þeim kulda sem kemur með vetrinum.
Annars hef ég verið frekar upptekinn í vinnu í sumar. Þrátt fyrir að maður sé “freelance” þá hef ég unnið meira og minna 5 daga vikunnar í allt sumar. Ég get því ekki kvartað því það er alls ekki tilfellið hjá flestum sem útskrifuðust með mér í vor. Ég er nú ekki í miklu sambandi við það fólk, nema í gegnum Facebook, en ég veit samt um nokkuð marga sem hafa þurft að yfirgefa Manhattan vegna þess að þeir fengu enga vinnu í sumar. Þeir hafa því þurft að flytja aftur heim, og dottið í annað hvort gömlu vinnuna sína eða eitthvað sem foreldrar redduðu.
Eitt sem hefur setið á hakanum í sumar vegna vinnu er ljósmyndun. Ég hef ekki tekið EINA ljósmynd síðan ég útskrifaðist, sem er mjög magnað. Kannski maður geri eitthvað í því á morgun (í dag) þar sem ég er ekki að vinna, aldrei þessu vant. Finnst samt líklegt að maður noti daginn á sama hátt og maður hefur notað aðra frídaga í sumar, í að gera akkúrat ekki neitt.
Fyrsta vikan á nýja hjólinu gekk vel, hjólaði fjórum sinnum. Tók tvo stutta túra og síðan tvo lengri. Var ansi þreyttur í byrjun vikunnar en það er magnað hvað þetta kemur hratt þegar maður hefur grunninn, því ég fór 40km í dag og finn akkúrat ekkert fyrir því.
Einu ætla ég að breyta hérna á síðunni. Ég ætla að hætta að nota Flickr-aðganginn minn og fara að pósta símamyndunum mínum bara beint hingað inn. Það var sama sem enginn að skoða Flickrið mitt hvort sem er, og síðan getur enginn kommentað nema skrá sig inn, sem er glatað. Með því að pósta myndunum hingað, sem er orðið ansi auðvelt með WordPress appinu á iPhone, þá vona ég að það hleypi aðeins lífi í þessa annars dauðu síðu.
Annars er pæling nr. tvö að pósta ljósmyndapælingunum mínum hérna líka, og loka þar af leiðandi Photolab síðunni minni. Pælingin er að hafa þetta allt á sama staðnum, en ég veit samt ekki alveg hvort það gangi með ljósmyndasíðuna, er aðeins hikandi varðandi það. Þú mátt segja hvað þér finnst um það.
Að lokum, um síðuna, þá ætla ég að lappa aðeins upp á hana fljótlega. Ég uppfærði WordPress um daginn og braut í kjölfarið þau plugin sem ég nota hérna hægra meginn, þess vegna lítur allt svona undarlega út. Síðan er planið að bæta við Facebook innskráningu þannig að ef fólk er skráð inn á Facebook, þá er mun auðveldara að kommenta hjá mér. Ég reyndi nú að græja það fyrir nokkrum mánuðum en án árangurs, kannski það gangi betur núna.
Sigga systir á afmæli í dag. Til hamingju Sigga!
Látum það nægja í bili.